Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Fréttir

Styrkir til atvinnureksturs kvenna afhentir

Styrkir til atvinnureksturs kvenna til markaðssetningar erlendis á handverki og hönnun voru afhentir við formlega athöfn í Mýrinni í Kringlunni fimmtudaginn 18. mars sl. kl 14:00. Jafnframt var opnuð sýning í Mýrinni á þeim verkefnum sem hlutu styrk. Sýningin er liður í HönnunarMars sem stendur til sunnudagsins 21. mars. Lesa meira

Styrkir til atvinnureksturs kvenna til markaðssetningar erlendis á handverki og hönnun

Styrkir til atvinnureksturs kvenna til markaðssetningar erlendis á handverki og hönnun verða afhentir við formlega athöfn í Mýrinni í Kringlunni fimmtudaginn 18. mars nk. kl 14:00. Lesa meira

Samanburður fasteignamats á nokkrum þéttbýlisstöðum

Byggðastofnun hefur fengið Fasteignaskrá Íslands til að reikna út fasteignamat á sömu fasteigninni  í 25 þéttbýlisstöðum vítt um landið. Jafnframt var reiknað út fasteignamat viðkomandi húss og lóðar miðað við meðaltals fasteignamat á höfuðborgarsvæðinu. Lesa meira

Gagnagrunnur um íbúaþróun uppfærður

Gagnagrunnur Byggðastofnunar um íbúaþróun hefur verið uppfærður með tölum frá 1. desember 2009. Hægt er að skoða á myndrænan hátt íbúaþróun áranna 1997-2009 eftir kyni og aldri í skráðum sveitarfélögum 1. desember 2009, einnig er hægt að skoða ákveðin landsvæði. Lesa meira

Heimsóknir á öskudag

Ýmsar furðuverur kíktu í heimsókn til Byggðastofnunar í dag og sungu fyrir starfsfólk.  Útsendari heimasíðunnar smellti af nokkrum skemmtilegum myndum af gestunum.  Þær má sjá með því að smella hér.

Bræðslan hlaut Eyrarrósina 2010

Eyrarrósin 2010 kom í hlut tónlistarhátíðarinnar Bræðslunnar á Borgarfirði eystra og veittu aðstandendur hennar viðurkenningunni móttöku í gær við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Áskell Heiðar og Magni Ásgeirssynir, forsvarsmenn Bræðslunnar tóku við viðurkenningunni úr hendi Dorrit Moussaieff, verndara Eyrarrósarinnar. Lesa meira

NORA-styrkir, næsti frestur 8. mars

Norræna Atlantssamstarfið, NORA, úthlutar verkefnastyrkjum tvisvar á ári. Nú er komið að fyrri úthlutun ársins 2010.

NORA veitir að jafnaði styrki í eftirtöldum málaflokkum: Lesa meira

Eyrarrósin afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00

Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt.
Lesa meira

Nordregio auglýsir laust starf upplýsingafulltrúa

Nordregio auglýsir laust starf upplýsingafulltrúa (Head of communication) á skrifstofu sinni í Stokkhólmi.  Um er að ræða nýja stöðu innan stofnunarinnar.  Umsóknir skulu hafa borist á netfangið nordregio@nordregio.se fyrir 1. mars nk. Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning